Íslandsdeild Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation veitir styrki til að efla tengsl Íslands og
Japans. Aðallega verða veittir styrkir til menntamála og rannsóknarverkefna, en auk þess nokkrir
á sviði menningar og lista. Styrkina má veita stofnunum og einstaklingum.
Styrkirnir eru til verkefna í samstarfi eða í tengslum við japanska aðila. Veittir eru ferðastyrkir,
námsstyrkir og styrkir til skammtíma dvalar í Japan.
Heimilt er að sækja um styrk frá 1. desember til 31. janúar ár hvert.
Umsóknum skal skila inn á rafrænt umsóknarkerfi sjóðsins. Ekki er tekið við umsóknum sem
berast bréflega eða með tölvupósti.
Til að fylla út umsókn vinsamlega smellið á „Umsókn/to Application“ hér til hægri.
Vinsamlega lesið „Leiðbeiningar/Guidelines“ hér til hægri áður en umsókn er fyllt út.
Ef þörf er á frekari upplýsingum þá vinsamlega hafið samband við ritara Íslandsdeildar sjóðsins:
Björg Jóhannesdóttir
Farsími: +354 820-5292
[email protected]
Umsóknir skulu berast fyrir 31. janúar.